top of page

Árangur næst með þjálfun, ráðgjöf og stuðningi við hæfi í iðjuþjálfun

Áskoranir geta oft virst óyfirstíganlegar en með réttum stuðningi, ráðgjöf og þjálfun verða þær viðráðanlegar.


Ungur einstaklingur sem býr út á landi hafði samband við Heimastyrk til að fá fjarþjálfun. Viðkomandi hafði fengið heilablóðfall rúmu ári áður en hann hafði samband og misst styrk og hreyfigetu öðrum megin í líkamanum. Þrátt fyrir að vera búinn að vera í sjúkraþjálfun í að verða ár í sínu bæjarfélagi eftir útskrift frá Grensás var færni í hendinni ekki orðin góð og hafði það neikvæð áhrif á getu við að sinna t.d. sjálfri sér, heimili og vinnu.


Við höfum hist reglulega í fjarþjálfun á skjánum til að meta færni í höndum, hreyfigetu, styrk og færni við ýmsa iðju. Í hvert sinn er æfingum breytt í takt við aukna færni.


Á aðeins 8 mánuðum hefur handstyrkur tvöfaldast. Liðleiki í hendi og fingrum einnig aukist og er orðinn ca 85-90% sem er gríðarlegur ávinningur frá því áður en iðjuþjálfunin hófst. Hann er ákveðinn í að ná aftur fyrri færni og sinnir markvisst iðjuþjálfun samhliða sjúkraþjálfun. Núna á aðeins 3 mánuðum er hann farinn að geta t.d. klætt sig aftur með báðum höndum sem hann gat ekki fyrir 3 mánuðum. Hann getur skrifað á lyklaborð með báðum höndum, skorið grænmeti með báðum höndum, pakkað inn gjöfum og svo margt fleira.


Fyrir okkur sem gerum þessa iðju daglega án þess að hugsa um það er þetta sjálfsagður hlutur en fyrir þá sem missa niður mikinn styrk og liðleika t.d. eftir heilablóðfall er þetta ekki sjálfsögð iðja.


Við uppfærðum æfingaráætlunina í síðasta tíma og þá er mjög mikilvægt að geta litið yfir þessa mánuði og sjá hversu mikill árangur hefur náðst við marga iðju. Það er drifkrafturinn í að takast á við nýju verkefnin, æfingarnar og iðjuna sem er enn erfið og krefjandi að framkvæma því það átti líka við um aðra iðju sem hann getur gert núna án þess að hugsa um það.


bottom of page