top of page
Ice Covered Hills

Heimastyrkur

- stuðningur, ráðgjöf, þjálfun, fræðsla, skynvitund og -meðferð og faghandleiðsla.

Stuðningur til sjálfshjálpar, meiri vellíðan og trú á eigin getu og áhrifamátt gegnum iðju og félagsþátttöku.

Heimastyrkur býður upp á stuðning, ráðgjöf, þjálfun, fræðslu og skynmeðferð fyrir börn og fullorðna á öllum aldri sem og handleiðslu, ráðgjöf, stuðning og þjónustu fyrir fagfólk, vinnustaði, félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir.

Tímapantanir

 heimastyrkur@heimastyrkur.is 

noona.is/heimastyrkur og Heimastyrkur.is

Vinnustaðir
Rock Climbing
Enjoying the Nature

Athugið, það þarf ekki tilvísun frá lækni til að panta tíma í ráðgjöf og þjónustu hjá Heimastyrk.

Hægt er að sækja um styrk hjá mörgum stéttarfélögum til að koma til móts við greiðslur fyrir m.a. þjónustu iðjuþjálfa.

Þjónusta í boði

  • Mat, ráðgjöf, þjónusta og þjálfun fyrir einstaklinga, starfsfólk og fyrirtæki.

  • Fræðsla, námskeið og kennsla fyrir einstaklinga og vinnustaði.

  • Þjónusta iðjuþjálfa.

  • Handleiðsla fyrir vinnustaði, stjórnendur og fagfólk.

  • Úttektir á vinnustöðum, skólaumhverfi og heimilum.

  • Sérhæfð handaþjálfun fyrir fólk með gigt, verki og taugasjúkdóma.

  • Mat og greining á skynjun og skynúrvinnslu barna og fullorðinna ásamt ráðgjöf.

  • Ökumat vegna endurnýjunar á ökuskírteini í samstarfi við ökukennara.

  • Ráðgjöf og aðstoð tengt hjálpartækjum og velferðartækni inn á heimili, í bílinn, tengt frístundum, breytingum á húsnæði og nýbyggingum fyrir einstaklinga, vinnustaði, fyrirtæki og stofnanir. 

  • Ráðgjöf og þjónusta tengt þróun á þjónustu og aðbúnaði fyrirtækja, félagasamtaka, stofnana og sveitarfélaga.

  • Samstarf við félagasamtök, vinnustaði, sveitarfélög, stofnanir, barnavernd, sérfræðilækna, sálfræðinga, Parkinsonsamtökin, Gigtarmiðstöðin, Heilsuklasinn, NPA miðstöðin, Virk starfsendurhæfingarsjóð og Vinnumálastofnun.

Natural Hot Springs
bottom of page