top of page

Hlutverkastjórnun og jafnvægi í daglegri iðju

Stað- og fjarnámskeið


Veldu þér hlutverk sem hafa jákvæð áhrif á heilsuna þína !

Farið er yfir áhrif streitu á taugakerfið, skynnæmi líkamans og hvaða bjargráð geta reynst gagnleg heima, í vinnu og við tómstundir til að ná betri orkustjórnun gegnum ólík hlutverk.

Námskeiðið er 4 skipti á miðvikudögum milli kl. 13-15 og fer fram í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði og á zoom fyrir þá sem það vilja og þurfa.

Á þessu námskeiði er kjarninn úr iðjuþjálfunarfræðum dreginn saman til að veita þátttakendum persónuleg bjargráð til að auka færni við daglega iðju og vinnu, félagslega þátttöku, draga úr streitu og hvetja til slökunar gegnum fræðslu og verklegar æfingar. Þátttakendur fá tækifæri til að máta sig við ólík hlutverk, styrkleika og bjargráð á námskeiðinu samhliða stuðningi við að yfirfæra það sem hentar þeim yfir á sitt eigið líf.

Námskeiðsgjald er 45.000 kr.

*Athugið að hægt er að kanna með styrki hjá stéttarfélögum.

Skráning fer fram hér

Námskeiðsumsjón hefur Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi og faghandleiðari sem hefur lokið ýmsum hagnýtum námskeiðum tengt t.d. skynjun og taugafræði, tengslamyndun, sjálfsmynd, HAM fyrir fagfólk, breytingastjórnun, verkefnastjórnun og fleira.


Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna inn á Heimastyrkur.is undir Námskeið


bottom of page