top of page

Hjálpartæki og velferðartækni

Ýmis tækni og tæki eru í boði í dag hér á Íslandi sem og erlendis sem hafa það markmið að einfalda daglegt líf og gera okkur kleift að vera sjálfbjarga sem lengst á eigin heimili og við að sinna þeim athöfnum á daginn sem eru okkur mikilvæg. Þar má nefna eigin umsjá t.d. að baðast, klæðast og borða, sinna störfum og verkefnum sem eru okkur mikilvæg heima fyrir, í vinnunni eða skólanum sem og frístundum og áhugamálum svo sem hreyfingu, samveru með vinum og fjölskyldu, útivist eða sköpun.

Ég útbjó stuttan lista um ýmis konar hjálpartæki og velferðartækni en mikil þróun hefur átt sér stað síðustu ár og því mun fleira i boði í dag en kemur fram hér. Þessar tillögur að lausnum geta gagnast þeim sem eiga orðið í vanda með ýmsar hreyfingar og athafnir og ýta undir að við notum minni orku í nauðsynleg verkefni. Það frábæra við það er að þá á maður meiri orku til að sinna því sem skiptir mann máli í lífinu, veitir gleði og vellíðan. Mæli með að þið farið og skoðið úrvalið hjá helstu söluaðilum í ykkar nærumhverfi. Helstu söluaðilar á höfuðborgarsvæðinu eru Stoð í Hafnarfirði, Eirberg uppá höfða, Fastus í Síðumúla, Öryggismiðstöðin í Kópavogi og Hjúki ehf. Einnig er hægt að versla ýmis minni hjálpartæki í Byko, Húsasmiðjunni, Bauhaus, Rekstrarvörur, apótekum og á netinu. Ég set skammstöfunina SÍ fyrir Sjúkratryggingar Íslands í sviga við þau hjálpartæki sem hægt er að sækja um að láni frá Sjúkratryggingum Íslands ef umsækjandi uppfyllir viðmið fyrir úthlutun. *Myndirnar af hjálpartækjunum og velferðartækninni eru fengnar að láni af heimasíðu Fastus, Stoð, Eirbergs/Stuðlabergs, Rekstrarvörur, Lyfju og Hjúki ehf.

Hjálpartæki og velferðartækni tengd eigin umsjá.

Sokkaífærur og sokkaúrfæra (SÍ)









Sokkaífæra fyrir venjulega sokka










Sokkaífæra fyrir stuðningssokka












Úrfæra fyrir stuðningssokka



Sturtustólar og baðbretti (SÍ)









Sturtukollur (hægt að fá snúningsdisk ofan á þennan sturtukoll)













Sturtustóll með baki og örmum











Veggfestur sturtustóll













Baðbretti með handfangi



Snyrtiáhöld









Baðbursti með skafti












Etac baðbursti













Etac baðbursti með sveigðu skafti (hentar vel fyrir þá sem eru með slit eða skerta hreyfigetu í öxlum)













Hárþvottabursti fyrir sjampó (hentar vel fyrir þá sem eru með slit eða skerta hreyfigetu í öxlum)















Hárbursti með löngu skafti (hentar vel fyrir þá sem eru með slit eða skerta hreyfigetu í öxlum)














Hárgreiða með löngu skafti (hentar vel fyrir þá sem eru með slit eða skerta hreyfigetu í öxlum)



Lyfjaumsjón










Töfluskeri











Ná töflum úr pakkningum













Töflumyljari












Gúmmíhólkur til að opna t.d. lyfjaglös og krukkur


Hjálpartæki og velferðartækni tengd heimili, húsverkum og heimilishaldi.

Griptöng, fæst í mismunandi lengdum til að nota við klæðnað eða húsverk (SÍ)










Eldhúsáhöld










Hólkar til fá betra grip













Skæri sem opnast sjálfkrafa









Hnífapör með breiðu skafti, létt og þung









Hnífar með sveigðu skafti, misstórir










Ostaskeri með sveigðu skafti












Skurðarbretti sem hjálpar til









Universal, fyrir snúningstakka











Flysjari á fingur












Diskkantur eða diskur með háum köntum


Snúningslök og diskar (SÍ)







Snúningslak þverlak














Snúningslak teygjulak (vatnshelt og venjulegt)













Mastercare undirlak









Mastercare yfirsnúningslak











Snúningsskífa í bíl eða stóla í heimahúsi












Snúningssessa í bíl með höldum


Stuðningsstangir, skolsalerni og stoðir (SÍ)











Salernisseta með stoðum (fæst með upphækkun, líka upphækkun án arma)












Sjálfvirk skolsalernisseta














Stoð með gálga/þverstöng












Stoðir festar á vegg við salerni með eða án salernispappírs haldara



Hjólastólar, vinnustólar og gönguhjálpartæki (SÍ)














Hækjur












Stafur











Lág göngugrind












Há göngugrind (fyrir þá sem eru verkjaðir í úlnlið, framhandleggsbrot eða t.d. slit vegna gigtar)













Göngugrind fyrir fólk með parkinson með grænu ljósi og viðbótar bremsubúnaði til að draga úr fallhættu (Gemino 30)













Vinnustólar og standstólar m/gaspumpu eða rafknúinn (hægt að fá með og án hjóla)














Hjólastólar ýmsar tegundir og stærðir með og án rafmagns



Ýmis minni hjálpartæki










Aukagrip á sköft t.d. skóflu og ræstisköft











Lyftiband fyrir fætur til að lyfta fótum t.d. uppí bíl, sófa eða rúm (SÍ)



















Mismunandi áhöld sem auðvelda grip á lyklum










Bókastandur














Barahealth Epli til að styðja undir hendur og axlir (SÍ)
















Barahealth Pera til að styðja undir hendur og axlir (SÍ)
















Barahealth Snákur til að styðja við höfuð, háls og herðar


Róbotar, tækjabúnaður og forrit








Ryksugu- og skúringarróbotar ýmsar tegundir, fást ódýrt t.d. á netinu











Snúrulausar og/eða frístandandi ryksugur og skúringavélar














Skúringarbúnaður með löngu skafti, þarf ekki að beygja sig (með eða án hjóla)









Rykkústur með eða án skafts sem hægt er að lengja


Matvöruverslanir á netinu sem senda heim fyrir lítinn pening eða að kostnaðarlausu (margar verslanir, veitingastaðir og fyrirtæki senda heim)






























Eldum rétt, hráefni og uppskriftir í rétti.


Einn tveir elda, hráefni og uppskriftir í rétti.

Eirberg Stórhöfða og Kringlan, Reykjavík www.eirberg.is og www.stb.is

Fastus Síðumúla, Reykjavík www.fastus.is

Hjúki ehf, vefverslun www.hjuki.is

Rekstrarvörur Réttarhálsi, Reykjavík www.rv.is

Stuðlaberg Stórhöfða, Reykjavík www.stb.is

Stoð Trönuhrauni, Hafnarfirði www.stod.is

Öryggismiðstöðin Askalind, Kópavogi www.oryggi.is

Títus Turnahvarf, Kópavogi https://titus.is


Heimastyrkur

Guðrún Jóhanna Hallgríms iðjuþjálfi og faghandleiðari

heimastyrkur@heimastyrkur.is

S. 8486509

bottom of page