
Feimnar stelpur, 9-12 ára
- sjálfsstyrkingarnámskeið
Feimnar stelpur - stelpur á rófinu,
sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir feimnar 9-12 ára stelpur (hún, hán/stálp með leg, transstelpur á kvenhormónum) sem eru eða geta verið á einhverfurófi.
Námskeiðið hentar vel þeim stelpum sem eru t.d. mjög hlédrægar eða feimnar, fyrir þær sem eiga fáa eða enga nána vini, upplifa mikinn kvíða, hafa mögulega lent í "skólaforðun" eða einelti í skóla, forðast íþrótta- og tómstundastarf og eru líklegar til að halda sig mikið heima við, fara sjaldan út af heimili af sjálfsdáðum.
Stelpurnar geta verið með greiningar eins og ADHD, kvíða, einhverfu eða lesblindu en ekki nauðsyn að hafa greiningar til þátttöku. Aðal áhersla á námskeiðinu er feimnin og hvernig hægt er að auka vellíðan í ólíkum aðstæðum og samskiptum, þar á meðal í skólanum og heima.
Feimnar stelpur - stelpur á rófinu, 9 - 12 ára
- sjálfsstyrkingarnámskeið
Stelpur á rófinu - sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir feimnar 9-12 ára stelpur sem eru eða geta verið á einhverfurófi (hún, hán/stálp með leg, transstelpur á kvenhormónum).
Námskeiðið hentar vel þeim stelpum sem eru t.d. mjög hlédrægar eða feimnar, fyrir þær sem eiga fáa eða enga nána vini, upplifa mikinn kvíða, hafa mögulega lent í "skólaforðun" eða einelti í skóla, forðast íþrótta- og tómstundastarf og eru líklegar til að halda sig mikið heima við, fara sjaldan út af heimili af sjálfsdáðum.
Farið yfir þroskaferli og skynfæri líkamans, hlutverk skynjunar, skynúrvinnslu og áhrif á líðan, heilsu og færni við iðju. Sjálfsmyndin verður skoðuð út frá ólíkum sjónarhornum auk þess sem þátttakendum gefst tækifæri á að rýna í ólík áhugasvið, styrkleikana sína og hæfileika. Markmið námskeiðsins er að auka skilning á innri líðan stelpna sem eru með greiningu eða grun um að vera á einhverfurófi. Þeim þörfum sem þær geta upplifað, hvað hefur neikvæð áhrif á líðan þeirra og ástæður þess, og hvernig þær geta með árangursríkum hætti betur mætt sínum þörfum til að auka vellíðan og heilsu.
Stelpurnar sem taka þátt fá m.a. gefins fidget vörur, bók sem þær nýta á námskeiðinu, skoða hvaða áhrif ýmis skynáreiti hafa á líðan sína og fá aðgang að upplýsingum, myndböndum og fræðslu á netinu á innri vef Heimastyrks, www.heimastyrkur.is
Næsta námskeið:
- 5. apríl 2025 milli kl. 13:30 - 14:30, laugardagar.
Námskeiðið er 10 vikna stað- og fjarnámskeið (Zoom) í Lífsgæðasetrinu St. Jó og á Zoom fyrir þær sem búa út á landi og erlendis og komast ekki í salinn. Hægt er að sækja um frístundastyrki hjá flestum sveitarfélögum.
*ATHUGIÐ! Nóg er að verða 9 ára á árinu og í lagi að verða 13 ára á árinu til að geta tekið þátt. Það er árið sem telur, ekki afmælisdagurinn.
Námskeiðsgjald er 65.000 kr og er í boði að skipta greiðslunni í tvennt ef þörf er á eða greiða með greiðslukorti í Netverslun Heimastyrks, sjá nánar hér. Hægt að kanna með styrki hjá stéttarfélögum og frístundastyrk hjá sveitarfélögum.
Skráning er hafin á námskeiðið, sjá nánar hér.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást inn á www.heimastyrkur.is
og hægt að senda fyrirspurn inn á heimasíðunni undir "Hafa samband" eða með því að senda tölvupóst með nafni og símanúmeri á heimastyrkur@heimastyrkur.is
Námskeiðsumsjón hefur Guðrún Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi með diplómu á meistarastigi í handleiðslufræðum sem hefur lokið ýmsum hagnýtum námskeiðum tengt t.d. skynjun og taugafræði, tengslamyndun, sjálfsmynd, samkennd í eigin garð, leiklist, tímastjórnun, HAM fyrir fagfólk, breytingastjórnun og verkefnastjórnun.
Umsagnir foreldra þátttakenda:
"Við mælum svo heilshugar með þessu námskeiði. Dóttir mín hlakkaði alltaf til að mæta, fannst hún læra margt gagnlegt, fannst gott að hitta aðrar henni líkar og leið mjög vel á námskeiðinu. Bæði er hún Guðrún Jóhanna yndisleg og náði vel til hennar og henni tekst líka að búa til umhverfi á námskeiðinu sem fellur vel að þörfum þeirra sem eru skynsegin. Mér finnst dóttir mín hreinlega glaðari eftir námskeiðið en líka sáttari og rólegri í sínu hafa lært margt um hvernig það er að lifa sem skynsegin."
"Ég sé mikinn mun á mínu barni og mæli hiklaust með þessu námskeiði."
"Námskeiðið nýttist mínu barni mjög vel, það voru ekki bara við heimilisfólkið sem fundum það heldur fann starfsfólk skólans greinilegan jákvæðan mun á líðan þess. Mæli hiklaust með þessu námskeiði fyrir stelpur og stálp á rófinu."
"Námskeið sem dóttir mín upplifði sig tilheyra og fá skilning á sjálfum sér."
"Hún var í byrjun ekkert sérstaklega spennt að vera "send" á námskeið en strax eftir fyrsta skiptið breyttist tóninn og eftir annað skiptið var þetta orðið einn af hápunktum vikunnar. Henni hefur liðið mjög vel."
"Ég sá umfjöllun um námskeiðið í Facebook hópi sem ég er í fyrir aðstandendur einhverfra barna. Það hefur lengi vantað svona námskeið sem hentar stelpum á þessum aldri af því að þær geta átt erfitt með að skilja sig og aðra og sérstaklega á kynþroskaskeiðinu. Dóttir mín var búin að vera að upplifa allskonar tilfinningar og annað sem hún skildi ekki og átti erfitt með að vinna úr. Við foreldrarnir áttum erfitt með að hjálpa henni og fáum enga utanaðkomandi aðstoð. Þegar ég sá að námskeiðið væri framundan þá skráði ég stelpuna mína sem verður 13 á árinu, strax án þess að hugsa mig tvisvar um. Henni fannst námskeiðið æðislegt og mjög gagnlegt. Við foreldrarnir vorum einnig mjög ánægðir með það."
"Námskeið sem dóttir mín upplifði sig tilheyra og fá skilning á sjálfum sér."
"Ég fræddist sjálf um mín eigin einhverfueinkenni og þótti það mjög áhugavert og gagnlegt. Ég vona að dóttir mín búi að þessari fræðslu áfram og það hjálpi henni við að skilja sjálfa sig betur."
"Dóttir mín var mjög ánægð með námskeiðið og hvernig það var uppsett. Hún lærði ný hugtök sem voru að ná að útskýra hvernig henni leið og sínar tilfinningar sem er mjög mikilvægt. Hún hefði sjálf viljað hafa námskeiðið lengra og helst bara alltaf einu sinni í viku þar sem henni fannst hún vera þarna í “save space” þar sem hún gat verið hún sjálf. Takk fyrir frábært námskeið og frábæra nálgun."
"Námskeiðið var ótrúlega vel uppsett, góð og flott gögn sem unnið var með og það var svo algjörlega hugað að öllum smáatriðum varðandi líðan og skynjun stelpnanna. Mæli svo 100% með!"
"Mig langaði bara til að byrja á að þakka þér fyrir frábært námskeið (sjálfsstyrking fyrir einhverfar stelpur). Það er svo mikill munur á dóttur minni eftir námskeiðið, að það er vægast sagt ótrúlegt! Hún er mun opnari, betri í okkar samskiptum, svo mikið öruggari með sjálfan sig og svo mætti lengi telja. Ég bar auðvitað vonir til námskeiðsins en hennar árangur fór langt fram úr mínum væntingum."
"Mikið er ég glöð að þú ákvaðst að halda svona námskeið 🫶"
"Ég get ekki hamrað á því nógu oft hvað ég er þakklát fyrir að þú ákvaðst að setja saman svona námskeið, þarf bara að hrósa þér endalaust fyrir að setja þetta í framkvæmd. Elska svona 🙂 þessi fræðsla er svo mikilvæg að mínu mati."
"Takk fyrir frábært námskeið fyrir stelpurnar. Stelpan mín hefur lært heilmargt á þessu námskeiði og er mjög ánægð með allt sem hún hefur lært þarna. Hún var bara sorgmædd þegar námskeiðið var búin."
"Mér finnst námskeiðið hjá þér sjúklega flott og allt efnið sem þú notar og sýnir stelpunum 👏 "