top of page
Search

Námskeiðið Vellíðan og heilsa fyrir fólk með gigt, verki og stoðkerfisvanda hefst 20. september 2023

  • Aug 30, 2023
  • 1 min read

Námskeiðið Vellíðan og heilsa sem er fyrir fólk með gigt, verki og stoðkerfisvanda hefst miðvikudaginn 20. september kl. 13:00 í Lífsgæðasetrinu St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.


Námskeiðið er 3 skipti og fer fram á miðvikudögum þann 20. september, 27. september og 4. október 2023.


Fjallað verður um hreyfiferla og heilsusamlega líkamsbeitingu við daglega iðju. Fræðsla og kennsla í verkjastillandi og orkusparandi aðferðum fyrir líkamann með áherslu á hendur, liðvernd og styrkjandi æfingar. Æfingarnar verða sýndar og þátttakendum leiðbeint sérstaklega í lok hvers tíma hvernig er best að gera þær heima. Kynntar verða ýmsar lausnir, úrræði og hjálpartæki til að auka vellíðan og færni við iðju.


Skráning fer fram inn á www.heimastyrkur.is undir Námskeið eða með því að smella hér

Hægt er að kanna með styrki hjá stéttarfélögum fyrir kostnaði og innifalið í verði er gefins æfingabúnaður til að nota heima. Námskeiðsverð er 24.500 kr.

ree

Hér má sjá hluta af umsögnum fyrri þátttakenda





 
 
 

Comments


Aerial Abstract Landscape

heimastyrkur@heimastyrkur.is

8486509

Starfsstöðvar Heimastyrks

- Lífsgæðasetrið St. Jó, Hafnarfirði

- Heilsuklasinn, Reykjavík

- Vettvangur, vinnustaða- og skólaheimsóknir

- Fjarheilbrigðisþjónusta og -ráðgjöf á netinu

Skilmálar Heimastyrkur slf.

bottom of page