
Unglingsstelpur 12-18 ára sjálfsstyrking
Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 12-18 ára unglingsstelpur sem eru með greiningar eða grun um að vera með félagskvíða, hamlandi kvíða, ADHD eða á einhverfurófi, hentar einnig vel kynsegin unglingum.
Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglingsstelpur og kynsegin unglinga 12-18 ára sem eru með greiningar eða grun um að vera með félagskvíða, hamlandi kvíða, ADHD eða á einhverfurófi, hentar einnig vel kynsegin unglingum.
- hefst 8. maí og er 2x í viku í 10 vikur, 8. maí til 17. júlí 2026.
Föstudaga kl. 17:00-18:30 í Lífsgæðasetrinu st. Jó í Hafnarfirði (ekki í boði að vera með á netinu vegna þeirra verklegu verkefna sem fara fram á námskeiðinu í salnum).
Þriðjudaga kl. 16:30 á Teams yoga á netinu ásamt teygjuæfingum og öndunaræfingum með yogakennara.
Námkeiðsgjald er 99.900 kr og ættu flest sveitarfélög að samþykkja niðurgreiðslu með frístundastyrk.
- Í boði er að skipta greiðslunum í 2 greiðslur fyrir þau sem það þurfa eða greiða með Visa korti í netverslun ef ekki á að nýta frístundastyrkinn, sjá nánar upplýsingar í netversluninni inn á www.heimastyrkur.is
Umsjón með námskeiðinu hefur Guðrún Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi, MA í öldrunarfræðum og diplómu á meistarastigi í handleiðslufræðum.
Eftirfarandi leiðbeinendur eru á námskeiðinu í samstarfi við Guðrúnu Hallgrímsdóttur:
- Fjóla Eðvarðsdóttir, þroskaþjálfi og listmeðferðarfræðingur
- Arna Björk Sveinsdóttir, félags- og kynjafræðingur og yogakennari
- Andri Freyr Sigurpálsson, leikari
Námskeiðið fer fram með þeim hætti að fyrsti tími er kynning á námskeiðinu og þátttakendur fá tækifæri á að hittast í öruggu rými og fá fræðslu tengt áhrifum kvíða í daglegu lífi tengt fjölskyldu, námi og vinum og hvaða áhrif hann getur haft á líkamann, hreyfingu, svefn og næringu.
Í vikulegu tímunum í kjölfarið fá þátttakendur tækifæri á að læra verklegar æfingar til tjáningu með öruggum hætti, verklegar æfingar til að þess að ná að ró í líðan gegnum hreyfingu, leiklist, öndun og listsköpun.
Einnig mun Guðrún Hallgríms bjóða foreldrum upp á fræðslu samhliða, í upphafi og í seinnihluta námskeiðsins ásamt persónulegri ráðgjöf í lok námskeiðsins fyrir hvern þátttakanda og foreldri.
Fyrir þau sem það vilja er í boði að óska eftir mati á skynúrvinnsluferli þátttakanda gegn auka greiðslu sem er gagnlegt fyrir unglinginn, foreldrið, heimilið og skólaumhverfið ef það á við. Hægt er að fá nánari upplýsingar um þann kostnað og námskeiðið í heild fást með því að senda fyrirspurn með því að Hafa samband inn á www.heimastyrkur.is
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást með því að senda fyrirspurn hér á heimasíðunni undir "Hafa samband" eða með því að senda tölvupóst á heimastyrkur@heimastyrkur.is og þá þarf að láta símanúmer fylgja með.
Skráning á námskeiðið fer fram hér en einnig er hægt að finna námskeiðið inn á Abler hjá Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ, Hafnarfjörður samþykkir einnig námskeiðið og ætla má að önnu sveitarfélög samþykki það líka miðað við almenna skilmála fyrir frístundastyrkjum sveitarfélaga.
Umsagnir foreldra þátttakenda á sambærilegu námskeiði:
"Við mælum svo heilshugar með þessu námskeiði. Dóttir mín hlakkaði alltaf til að mæta, fannst hún læra margt gagnlegt, fannst gott að hitta aðrar henni líkar og leið mjög vel á námskeiðinu. Bæði er hún Guðrún Jóhanna yndisleg og náði vel til hennar og henni tekst líka að búa til umhverfi á námskeiðinu sem fellur vel að þörfum þeirra sem eru skynsegin. Mér finnst dóttir mín hreinlega glaðari eftir námskeiðið en líka sáttari og rólegri í sínu hafa lært margt um hvernig það er að lifa sem skynsegin."
"Ég sé mikinn mun á mínu barni og mæli hiklaust með þessu námskeiði."
"Námskeiðið nýttist mínu barni mjög vel, það voru ekki bara við heimilisfólkið sem fundum það heldur fann starfsfólk skólans greinilegan jákvæðan mun á líðan þess. Mæli hiklaust með þessu námskeiði fyrir stelpur og stálp á rófinu."
"Námskeið sem dóttir mín upplifði sig tilheyra og fá skilning á sjálfum sér."
"Hún var í byrjun ekkert sérstaklega spennt að vera "send" á námskeið en strax eftir fyrsta skiptið breyttist tóninn og eftir annað skiptið var þetta orðið einn af hápunktum vikunnar. Henni hefur liðið mjög vel."
"Ég sá umfjöllun um námskeiðið í Facebook hópi sem ég er í fyrir aðstandendur einhverfra barna. Það hefur lengi vantað svona námskeið sem hentar stelpum á þessum aldri af því að þær geta átt erfitt með að skilja sig og aðra og sérstaklega á kynþroskaskeiðinu. Dóttir mín var búin að vera að upplifa allskonar tilfinningar og annað sem hún skildi ekki og átti erfitt með að vinna úr. Við foreldrarnir áttum erfitt með að hjálpa henni og fáum enga utanaðkomandi aðstoð. Þegar ég sá að námskeiðið væri framundan þá skráði ég stelpuna mína sem verður 13 á árinu, strax án þess að hugsa mig tvisvar um. Henni fannst námskeiðið æðislegt og mjög gagnlegt. Við foreldrarnir vorum einnig mjög ánægðir með það."
"Námskeið sem dóttir mín upplifði sig tilheyra og fá skilning á sjálfum sér."
"Ég fræddist sjálf um mín eigin einhverfueinkenni og þótti það mjög áhugavert og gagnlegt. Ég vona að dóttir mín búi að þessari fræðslu áfram og það hjálpi henni við að skilja sjálfa sig betur."
"Dóttir mín var mjög ánægð með námskeiðið og hvernig það var uppsett. Hún lærði ný hugtök sem voru að ná að útskýra hvernig henni leið og sínar tilfinningar sem er mjög mikilvægt. Hún hefði sjálf viljað hafa námskeiðið lengra og helst bara alltaf einu sinni í viku þar sem henni fannst hún vera þarna í “save space” þar sem hún gat verið hún sjálf. Takk fyrir frábært námskeið og frábæra nálgun."
"Námskeiðið var ótrúlega vel uppsett, góð og flott gögn sem unnið var með og það var svo algjörlega hugað að öllum smáatriðum varðandi líðan og skynjun stelpnanna. Mæli svo 100% með!"
"Mig langaði bara til að byrja á að þakka þér fyrir frábært námskeið (sjálfsstyrking fyrir einhverfar stelpur). Það er svo mikill munur á dóttur minni eftir námskeiðið, að það er vægast sagt ótrúlegt! Hún er mun opnari, betri í okkar samskiptum, svo mikið öruggari með sjálfan sig og svo mætti lengi telja. Ég bar auðvitað vonir til námskeiðsins en hennar árangur fór langt fram úr mínum væntingum."
"Mikið er ég glöð að þú ákvaðst að halda svona námskeið 🫶"
"Ég get ekki hamrað á því nógu oft hvað ég er þakklát fyrir að þú ákvaðst að setja saman svona námskeið, þarf bara að hrósa þér endalaust fyrir að setja þetta í framkvæmd. Elska svona 🙂 þessi fræðsla er svo mikilvæg að mínu mati."
"Takk fyrir frábært námskeið fyrir stelpurnar. Stelpan mín hefur lært heilmargt á þessu námskeiði og er mjög ánægð með allt sem hún hefur lært þarna. Hún var bara sorgmædd þegar námskeiðið var búin."
"Mér finnst námskeiðið hjá þér sjúklega flott og allt efnið sem þú notar og sýnir stelpunum👏 "
Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglingsstelpur og kynsegin unglinga 12-18 ára
- hefst 8. maí og er 1x í viku í 10 vikur kl. 17-18:30 í Lífsgæðasetrinu st. Jó í Hafnarfirði
- Þátttökugjald er 99.900 kr og ættu flest sveitarfélög að samþykkja niðurgreiðslu með frístundastyrk.
- Í boði er að skipta greiðslunum í 2 greiðslur fyrir þau sem það þurfa eða greiða með Visa korti í netverslun, sjá nánar upplýsingar í netversluninni inn á www.heimastyrkur.is
Umsjón með námskeiðinu hefur Guðrún Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi, MA í öldrunarfræðum og diplómu á meistarastigi í handleiðslufræðum.
Eftirfarandi leiðbeinendur eru á námskeiðinu í samstarfi við Guðrúnu Hallgrímsdóttur:
- Fjóla Eðvarðsdóttir, þroskaþjálfi og listmeðferðarfræðingur
- Arna Björk Sveinsdóttir, félags- og kynjafræðingur og yogakennari
- Andri Freyr Sigurpálsson, leikari og kvikmyndagerðarmaður
Námskeiðið fer fram með þeim hætti að fyrsti tími er kynning á námskeiðinu og þátttakendur fá tækifæri á að hittast í öruggu rými og fá fræðslu tengt áhrifum kvíða í daglegu lífi tengt fjölskyldu, námi og vinum og hvaða áhrif hann getur haft á líkamann, hreyfingu, svefn og næringu.
Í vikulegu tímunum í kjölfarið fá þátttakendur tækifæri á að læra verklegar æfingar til tjáningu með öruggum hætti, verklegar æfingar til að þess að ná að ró í líðan gegnum hreyfingu, leiklist, öndun og listsköpun.
Einnig mun Guðrún Hallgríms bjóða foreldrum upp á fræðslu samhliða, í upphafi og í seinnihluta námskeiðsins ásamt persónulegri ráðgjöf í lok námskeiðsins fyrir hvern þátttakanda og foreldri.
Fyrir þau sem það vilja er í boði að fá mat á skynúrvinnsluferli þátttakanda gegn auka greiðslu sem er gagnlegt fyrir unglinginn, foreldrið, heimilið og skólaumhverfið ef það á við. Hægt er að fá nánari upplýsingar um þann kostnað og námskeiðið í heild fást með því að senda fyrirspurn með því að Hafa samband inn á www.heimastyrkur.is