top of page

SUMARNÁMSKEIÐ! Einhverfar stelpur - sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 13-17 ára stelpur

SUMARNÁMSKEIÐ hefst miðvikudaginn 12. júní kl. 15:00-16:30 milli kl. 15:00-16:30 er 6 skipti á miðvikudögum fyrir utan síðasta tímann sem verður mánudaginn 15. júlí kl. 15:00-16:30.



Farið yfir þroskaferli og skynfæri líkamans, hlutverk skynjunar, skynúrvinnslu og áhrif á líðan, heilsu og færni við iðju. Sjálfsmyndin verður skoðuð út frá ólíkum sjónarhornum auk þess sem þátttakendum gefst tækifæri á að rýna í ólík áhugasvið, styrkleikana sína og hæfileika. Markmið námskeiðsins er að auka skilning á innri líðan stelpna sem eru með greiningu eða grun um að vera á einhverfurófi. Þeim þörfum sem þær geta upplifað, hvað hefur neikvæð áhrif á líðan þeirra og ástæður þess, og hvernig þær geta með árangursríkum hætti betur mætt sínum þörfum til að auka vellíðan og heilsu.


Stelpurnar sem taka þátt fá m.a. gefins fidget vörur, bók sem þær nýta á námskeiðinu, skoða hvaða áhrif ýmis skynáreiti hafa á líðan sína og fá aðgang að upplýsingum, myndböndum og fræðslu á netinu á innri vef Heimastyrks, www.heimastyrkur.is

Námskeiðið er 6 vikna stað- og fjarnámskeið (Zoom) og fer fram í Lífsgæðasetrinu St. Jó og á Zoom fyrir þær sem búa út á landi eða komast ekki í salinn. 

*ATHUGIÐ! Nóg er að verða 13 ára á árinu og í lagi að verða 18 ára á árinu til að geta tekið þátt. Það er árið sem telur, ekki afmælisdagurinn.

Námskeiðsgjald er 34.900 kr og er í boði að skipta greiðslunni í tvennt.

Nánari upplýsingar fást undir Námskeið inn á www.heimastyrkur.is og hægt að senda fyrirspurn inn á heimasíðunni undir "Hafa samband" eða með því að senda tölvupóst með nafni og símanúmeri á heimastyrkur@heimastyrkur.is 

 

Skráning er hafin á námskeiðið og fer fram hér.

Athugið að hægt er að greiða með greiðslukorti í Netverslun Heimastyrks, sjá nánar hér og hægt er að kanna með styrki hjá stéttarfélögum.


Námskeiðsumsjón hefur Guðrún Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi með diplómu á meistarastigi í handleiðslufræðum sem hefur lokið ýmsum hagnýtum námskeiðum tengt t.d. skynjun og taugafræði, tengslamyndun, sjálfsmynd, samkennd í eigin garð, leiklist, tímastjórnun, HAM fyrir fagfólk, breytingastjórnun og verkefnastjórnun. 



Umsagnir foreldra fyrri þátttakenda


"Dóttir mín var mjög ánægð með námskeiðið og hvernig það var uppsett. Hún lærði ný hugtök sem voru að ná að útskýra hvernig henni leið og sína tilfinningar sem er mjög mikilvægt. Hún hefði sjálf viljað hafa námskeiðið lengra og helst bara alltaf einu sinni í viku þar sem henni fannst hún vera þarna í “save space” þar sem hún gat verið hún sjálf. Takk fyrir frábært námskeið og frábæra nálgun."


"Henni fannst hún ná að skilja sjálfan sig og fá hugtök yfir eitthvað sem hún er að upplifa en hafði ekki náð að setja orð á það áður"


"Ég sá umfjöllun um námskeiðið í Facebook hópi sem ég er í fyrir aðstandendur einhverfra barna. Það hefur lengi vantað svona námskeið sem hentar stelpum á þessum aldri af því að þær geta átt erfitt með að skilja sig og aðra og sérstaklega á kynþroskaskeiðinu. Dóttir mín var búin að vera að upplifa allskonar tilfinningar og annað sem hún skildi ekki og átti erfitt með að vinna úr. Við foreldrarnir áttum erfitt með að hjálpa henni og fáum enga utanaðkomandi aðstoð. Þegar ég sá að námskeiðið væri framundan þá skráði ég stelpuna mína sem verður 13 á árinu, strax án þess að hugsa mig tvisvar um. Henni fannst námskeiðið æðislegt og mjög gagnlegt. Við foreldrarnir vorum einnig mjög ánægðir með það."


"Henni fannst umhverfið vera mjög gott. Hún mætti ekki í alla tímana en fannst stemningin í herberginu vera mjög notaleg og vildi frekar mæta en að vera heima."


"Námskeið sem dóttir mín upplifði sig tilheyra og fá skilning á sjálfum sér, gat tjáð sig og fengið skilning samnemanda og kennara"


"Ég fræddist sjálf um mín eigin einhverfueinkenni og þótti það mjög áhugavert og gagnlegt. Ég vona að dóttir mín búi að þessari fræðslu áfram og það hjálpi henni við að skilja sjálfa sig betur."


"Námskeiðið var ótrúlega vel uppsett, góð og flott gögn sem unnið var með og það var svo algjörlega hugað að öllum smáatriðum varðandi líðan og skynjun stelpnanna. Mæli svo 100% með!"

18 views0 comments
bottom of page