top of page

Stelpur - með greiningu eða grun um að vera á einhverfurófi.

 

Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 9-12 ára stelpur (hún, stálp með leg og transstelpur á kvenhormónum) ​á einhverfurófinu. Farið yfir þroskaferli og skynfæri líkamans, hlutverk skynjunar og áhrif hennar á líðan. Sjálfsmyndin verður skoðuð út frá ólíkum sjónarhornum auk þess sem þátttakendum gefst tækifæri á að rýna í 

ólík áhugasvið, styrkleikana sína og hæfileika. 

Næstu námskeið

12. október-14. desember kl. 13:30-14:30 á laugardögum.

 

Námskeiðið er 10 vikna stað- og fjarnámskeið (Zoom) sem fer fram í hlýlegum sal á 2. hæð í Lífsgæðasetrinu St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði og á Zoom fyrir þær sem búa út á landi eða komast ekki í salinn. Hægt er að sækja um frístundastyrki hjá flestum sveitarfélögum.

*ATHUGIÐ! Nóg er að verða 9 ára á árinu og í lagi að verða 13 ára á árinu til að geta tekið þátt. Það er árið sem telur, ekki afmælisdagurinn.​

 

Námskeiðsgjald er 65.000 kr og er í boði að skipta greiðslunni í tvennt ef þörf er á eða greiða með greiðslukorti í Netverslun Heimastyrks, sjá nánar í netversluninni. Hægt að kanna með styrki hjá stéttarfélögum og frístundastyrk hjá sveitarfélögum.

 

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning fer fram inn á www.heimastyrkur.is og hægt að senda fyrirspurn inn á heimasíðunni undir "Hafa samband" eða með því að senda tölvupóst með nafni og símanúmeri á heimastyrkur@heimastyrkur.is 

Stelpur á rófinu, 9 - 12 ára

65.000krPrice
    Beach Walkway

    Heimastyrkur.is

    heimastyrkur@heimastyrkur.is

    8486509

    Starfsstöðvar Heimastyrks

    - Lífsgæðasetrið St. Jó, Hafnarfirði

    - Heilsuklasinn, Reykjavík

    - Vettvangur, vinnustaða- og skólaheimsóknir

    - Fjarheilbrigðisþjónusta og -ráðgjöf á netinu

    Skilmálar Heimastyrkur slf.

    bottom of page