Peran er stór og notalegur stuðningspúði undir framhandleggi og hendur sem bætir setstöðu og gerir fólki kleyft að slaka á í herðum, handleggjum og baki. Hann er hannaður af Bjargey Ingólfsdóttur iðjuþjálfa og er hluti af vörulínunni BaraHealth.com
Peran hefur mjúkt borð fyrir handleggina sem nýtist við ýmiskonar iðju eins og bóklestur og tölvuvinnu. Púðinn kemur foreldrum ungbarna einnig að góðum notum.
Sjúkra- og iðjuþjálfar hafa frá upphafi mælt með Bara-púðunum. Margir upplifa öryggi, vellíðan og betra setjafnvægi þegar framhandleggirnir hvíla á púðunum og rannsóknir sýna að notkun þeirra dregur úr vöðvaspennu og auðveldar fólki ýmsa iðju.
Berðu góðan ávöxt! – Þrátt fyrir stærð Perunnar er auðvelt að taka hann með sér hvert sem farið er.
BaraHealth púðinn Peran, 1 stykki
39.900krPrice