Eplið frá Bara er fjölnota stuðningspúði sem styður við líkamann á marga vegu og nýtist bæði til iðju og til hvíldar. Hann er hannaður af Bjargey Ingólfsdóttur iðjuþjálfa og er hluti af vörulínunni BaraHealth.com
Eplinu er sérstaklega ætlað að vera stuðningur undir framhandleggina næst líkamanum þegar setið er og unnið með höndunum. Þannig léttir eplið álag á herðar og bak.
Púðinn er vinsæll við ýmsa handavinnu og rannsóknir sýna að hægt er að minnka vöðvaspennu með því að nota hann sem stuðning undir framhandleggina við tölvuvinnu.
Í innri hring púðans er teygja sem hægt er að draga saman svo þétt að hann klemmist utan um bolinn og það er jafnvel hægt að standa með hann þannig.
*Athugið að verðin fyrir BaraHealth vörurnar eru ákveðin af framleiðanda en hægt er að hafa samband við Heimastyrk til að kanna möguleika á að skipta greiðslu í tvennt ef þörf er á. Hægt er að senda fyrirspurn á netfangið heimastyrkur@heimastyrkur.is
top of page
36.900krPrice
bottom of page