top of page

Vellíðan og heilsa - gigt, verkir og stoðkerfisvandi


Nýtt námskeið hefst 7. mars fyrir þá sem eru með gigt, verki og stoðkerfisvanda og vilja auka vellíðan og heilsuna.


Námskeiðið er 3 skipti, fer fram á þriðjudögum milli 15:15-16:00 í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði.


Fræðsla og kennsla í verkjastillandi, orkusparandi og styrkjandi aðferðum við ýmsa iðju heima og í vinnu til að stuðla að meiri vellíðan, hreyfingu og heilsu.


Fjallað er um líkamann í heild og farið yfir aðferðir sem styðja við iðju án verkja og liðvernd, lögð er sérstök áhersla á hendir og fingur þar sem mikið af iðju dagsins er gerð með höndunum.


Námskeiðsverð er 24.500 kr og innifalið er búnaður sem nýtist á námskeiðinu og heima á milli tíma fyrir æfingar og til að verkjastilla. Hægt er að kanna með styrki hjá stéttarfélagi.



Nánari upplýsingar er að finna inn á Heimastyrkur.is undir þjónusta -> Námskeið og fyrirlestrar.

https://www.heimastyrkur.is/gigtogverkir-vellidanogheilsa

#heimastyrkur #guðrúnjóhannaiðjuþjálfi #vellíðan #heilsa #gigt #verkir#stoðkerfisvandi #verkjastillandi #liðvernd #orkusparandi #styrkjandi #heilsuefling#fræðsla #kennsla #ráðgjöf

8 views0 comments
bottom of page