top of page

Vöxtur og Vegferð - My Growth Path, námskeið fyrir fólk með greiningu eða grun um einhverfu.

Updated: Aug 11, 2022

Iðjuþjálfun Heimastyrkur og Míró Markþjálfun sameina krafta sína með námskeiðinu Vöxtur og Vegferð - My Growth Path

Tilgangur námskeiðs er að skilja kjarna persónunnar, ólíka hegðun og tegund af samskiptum. Áhersla er lögð á mikilvægi samkenndar og kærleika í eigin garð, trú á eigin getu og veittur stuðningur við að móta næstu skref í vegferð lífsins. Markmið þátttöku er að efla sjálfsmynd, skilning á eigin líðan og efla getu til að takast á við ólíkar aðstæður í samskiptum og félagsþátttöku.


Námskeiðið er ætlað einstaklingum 16 ára og eldri sem eru með greiningu eða hafa grun um að vera á einhverfurófinu og búa að krefjandi reynslu af vinnumarkaði, námi, félagsþátttöku og samskiptum.

Námskeiðið fer fram á mánudögum í 1,5 klst í 4 vikur og hvert skipti er 2 kennslulotur. Það er uppbyggt með fræðslu, verkefnum, umræðum og gagnlegum æfingum.

Staðnámskeið í Hafnarfirði er milli 14:15-15:45 og fjarnámskeið á zoom milli 17-18:30.

Vika 1 leggur áherslu á stýrifærni heilans, kjarna persónunnar og að hver persóna sé einstök, skynjun og skynfæri líkamans.

Vika 2 leggur áherslu á félagsþátttöku, samskipti og persónulegan vöxt.

Vika 3 leggur áherslu á eigin áhrifamátt, persónulega styrkleika og sigra.

Vika 4 leggur áherslu á stefnumótun þátttakenda í lífsins vegferð.

Námskeiðið er byggt á hugmyndafræði um m.a. taugasálfræðilegan þroska, skynjun og áskoranir tengt skynúrvinnslu, iðju og mikilvægi hennar út frá iðjuþjálfunarfræðum, reynslunámi, valdeflingu og eigin áhrifamætti og fjölgreindakenningu Howard Gardner.

Námskeiðsgjald er 39.000 kr. Skráning >>> hér

Nánari upplýsingar fást á netfanginu gudrun@heimastyrkur.is og í skilaboðum á facebook síðu Miró Markþjálfun

​​

​Námskeiðshaldarar eru:

Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi, MA í öldrunarfræðum og í handleiðslunámi við Háskóla Íslands er stofnandi Iðjuþjálfun Heimastyrkur, www.heimastyrkur.is Guðrún Jóhanna býr að áralangri reynslu af því að starfa við endurhæfingu, þjálfun og ráðgjöf fyrir börn, unglinga og fullorðna með adhd, einhverfu og skynúrvinnsluvanda og aðstandendur þeirra í skólakerfinu, á heimilum, vinnustöðum og dagþjónustu. Frá 2008 hefur hún tekið þátt í kennslu í framhaldsskólum, háskólum og símenntunarmiðstöðvum, haldið fyrirlestra, fræðslu og námskeið samhliða stjórnendahlutverki innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Í dag rekur hún Iðjuþjálfun Heimastyrk með starfstofur í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði og Heilsuklasanum í Reykjavík.

Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir gudrun@heimastyrkur.is Sigrún Jónsdóttir, þroskaþjálfi, einhverfu - og ADHD markþjálfi, ráðgjafi og stofnandi Miró markþjálfun, www.miro.is Sigrún rekur í dag Miró Markþjálfun og ráðgjöf. Þar starfar hún þar sem þroskaþjálfi, ráðgjafi og markþjálfi auk þess að starfa og reka Svefn Yoga sem Yoga Nidra kennari. Hún hefur á 30 ára feril sem þroskaþjálfi unnið með börnum, unglingum og foreldrum í skólakerfinu, á heimilum og í dagþjónustu með ungmennum og fullorðnum sem eru með ADHD eða einhverfu. Hún hefur persónulega reynslu af áskorunum og tækifærum einstaklinga með ADHD og einhverfurófinu úr sínu nánasta umhverfi.

Sigrún Jónsdóttir miro@miro.is

Næstu námskeið verða:

- Námskeið í Lífsgæðasetrinu St. Jó þann 15.11, 22.11, 29.11 og 6.12 2022 - fullt.

- Námskeið í Lífsgæðasetrinu St. Jó þann 17.1, 24.1, 31.1 og 7.2 2022 - fullt.

- Námskeið í Lífsgæðasetrinu St. Jó og á zoom þann 28.2, 7.3, 14.3 og 21.3 2022 - fullt.

- Námskeið í Lífsgæðasetrinu St. Jó og á zoom þann 25.4, 2.5, 9.5 og 16.5 2022 - fullt.

- 2ja daga stað- og fjarnámskeið á Akureyri þann 23. og 24. maí 2022 - laus pláss. Námskeiðið fer fram í húsnæði Starfsendurhæfingar Norðurlands, Glerárgötu 36, 2. hæð.

- Námskeið í Lífsgæðasetrinu St. Jó og á zoom þann 22.8, 29.8, 5.9 og 19.9 2022 - fullt

- Námskeið í Lífsgæðasetrinu St. Jó og á zoom þann 26.9, 3.10, 10.10 og 17.10 2022 - laus pláss

- Námskeið í Lífsgæðasetrinu St. Jó og á zoom þann 7.11, 14.11, 21.11 og 28.11 2022 - laus pláss.

Námskeiðsgjald er 39.000 kr. Skráning >>> hér



196 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page