Hugur og hendur, heilsunámskeið fyrir félagsfólk í Parkinsonsamtökunum
Skemmtilegt 5 vikna heilsunámskeið fyrir félagsfólk í Parkinsonsamtökunum hefst fimmtudaginn 17. febrúar og verður á fimmtudögum milli 13-14. Skráning fer fram á heimasíðu samtakanna, Parkinsonsamtökin.
5 vikna námskeið fyrir fólk með parkinson til að efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu. Á námskeiðinu verður minnisþjálfun, hreyfing, þrautir, handverk, slökun og hlátur til að auka vellíðan, líkamsstyrk og færni í höndum.
Í upphafi og lok námskeiðs verða mælingar í boði tengt handstyrk, vitrænni getu og lífsgæðum fyrir þá sem vilja fá mat á sinni færni.
Námskeiðið verður á fimmtudögum frá 17. febrúar til 17. mars milli kl. 13:00-14:00 í Takti miðstöð Parkinsonsamtakanna á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Umsjón með námskeiðinu hefur Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, iðjuþjálfi hjá HeimaStyrk.
Námskeiðið er niðurgreitt af Parkinsonsamtökunum er því aðeins í boði fyrir félagsfólk í samtökunum.
Athugið að aðeins komast 10 þátttakendur komast á námskeiðið að þessu sinni en það verður endurtekið síðar.
