Hlutverkastjórnun og jafnvægi í daglegri iðju.
Stað- og fjarnámskeið
Veldu þér hlutverk sem hafa jákvæð áhrif á heilsuna þína !
Farið er yfir áhrif streitu á taugakerfið, skynnæmi líkamans og hvaða bjargráð geta reynst gagnleg heima, í vinnu og við tómstundir til að ná betri orkustjórnun gegnum ólík hlutverk.
Námskeiðið er 4 skipti á þriðjudögum milli kl. 10-12 og fer fram í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði og á zoom fyrir þá sem það vilja og þurfa.
Á þessu námskeiði er kjarninn úr iðjuþjálfunarfræðum dreginn saman til að veita þátttakendum persónuleg bjargráð til að auka færni við daglega iðju og vinnu, félagslega þátttöku, draga úr streitu og hvetja til slökunar gegnum fræðslu og verklegar æfingar. Þátttakendur fá tækifæri til að máta sig við ólík hlutverk, styrkleika og bjargráð á námskeiðinu samhliða stuðningi við að yfirfæra það sem hentar þeim yfir á sitt eigið líf.
Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 25. apríl 2023.
Námskeiðsgjald er 45.000 kr.
*Athugið að hægt er að kanna með styrki hjá stéttarfélögum.
Skráning fer fram hér
Námskeiðsumsjón hefur Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi og handleiðari sem hefur lokið ýmsum hagnýtum námskeiðum tengt t.d. skynjun og taugafræði, tengslamyndun, sjálfsmynd, HAM fyrir fagfólk, breytingastjórnun, verkefnastjórnun og fleira.
Upplýsingar undir Þjónusta -> Námskeið og fyrirlestrar https://www.heimastyrkur.is/hlutverkastjórnunogjafnvægi
