top of page

Námskeið og fyrirlestrar

Námskeið

Gigt, verkir og stoðkerfisvandi (5).png

Vellíðan og heilsa
Gigt, verkir og stoðkerfisvandi

Lærðu að stuðla að meiri vellíðan, hreyfingu og heilsu þrátt fyrir gigt, verki og stoðkerfisvanda. Fræðsla og kennsla í verkjastillandi, orkusparandi og styrkjandi aðferðum. Fjallað er um líkamann í heild en sérstök áhersla lögð á hendur og handafærni þar sem mikið af iðju dagsins er gerð með höndunum. Sjá nánar >>>

3.png

Hlutverkastjórnun og jafnvægi í daglegri iðju

Veldu þér hlutverk sem hafa jákvæð áhrif á heilsuna þína !

Farið er yfir áhrif streitu á taugakerfið, skynnæmi líkamans og hvaða bjargráð geta reynst gagnleg heima, í vinnu og við tómstundir til að ná betri orkustjórnun gegnum ólík hlutverk. Sjá nánar >>>

Screenshot 2022-11-28 at 07.58_edited.jpg

Skynvitund - starfsfólk innan menntakerfis (leik-, grunn- og framhaldsskóla)

Á námskeiðinu er farið yfir skynfæri líkamans, hlutverk skynjunar og áhrif hennar á líðan. Aukin þekking hjá starfsfólki á skynvitund stuðlar að meiri vellíðan hjá nemendum og starfsfólki og getur því reynst einnig gagnlegt fyrir starfsfólkið í að auka eigin skynvitund og vellíðan. Sjá nánar >>>

Skynvitund - foreldrar barna með áskoranir í skynúrvinnslu

Námskeið sem hefur það markmið að styðja foreldra í að setja það í samhengi við í eigin reynslu og líðan að vera óörugg í samskiptum, kvíðin og þreytt og tengja það við skynjun og skynúrvinnslu - viðkvæmni, ekki fær um að læra eða bæta við. Kennsla í einföldum leiðum til að auka færni barna við iðju og í félagslegum samskiptum. Sjá nánar >>>

Skynvitund - foreldrar og börn, 6-9 og 10-12 ára með áskoranir í skynúrvinnslu

Námskeið sem hefur það markmið að styðja börn og foreldra að skilja áhrif skynjunar, hugsanir og tilfinningar sem getur dregið fram ólíka hegðun og samskipti. Kennsla i gagnlegum aðferðum þegar við missum stjórn á okkur, verðum hrædd eða óörugg og líður ekki vel. Sjá nánar >>>

Copy of Vöxtur og Vegferð (4).png

Vöxtur og Vegferð námskeið 
- My Growth Path

Námskeið ætlað 16 ára og eldri sem eru með greiningu eða hafa grun um að vera á einhverfurófinu og búa að krefjandi reynslu af vinnumarkaði, námi, félagsþátttöku og samskiptum.

Tilgangur námskeiðs er að skilja kjarna persónunnar, ólíka hegðun og tegund af samskiptum. Áhersla er lögð á mikilvægi samkenndar og kærleika í eigin garð, trú á eigin getu og veittur stuðningur við að móta næstu skref í vegferð lífsins. Markmið þátttöku er að efla sjálfsmynd, skilning á eigin líðan og efla getu til að takast á við ólíkar aðstæður í samskiptum og félagsþátttöku. Sjá nánar >>>

Fræðsla og fyrirlestrar

Screenshot 2023-03-05 at 15.50.18.png

Heilahreysti 
- minnisþjálfun og heilaleikfimi

Fræðsla, kennsla og leiðbeiningar fyrir fullorðna til að huga vel að heilsu heilans og heilahreysti. Fræðsla um starfsemi heilans og kennsla til að auka heilahreysti og minnisþjálfun gegnum ólíkar æfingar og gagnlegar aðferðir. Tilgangur fræðslu er að draga úr álagi og streitu og auka færni við einbeitningu, minni og vinnsluhraða heilans. Tilvalið fyrir vinnustaði og félagasamtök.

​Nánari upplýsingar um fyrirlesturinn og aðra fyrirlestra sem eru í boði á vegum Heimastyrks fást á netfanginu gudrun@heimastyrkur.is

241666442_827858771233319_3681889106044681804_n.jpg

Líkamsbeiting 
- skrifstofustörf

Fræðsla, ráðgjöf og leiðbeiningar fyrir starfsfólk sem vinnur við skrifstofustörf. Tilgangur þjónustu er að draga úr stoðkerfisvanda og álagi við skrifstofustörf og hvetja til heilsueflingar og vellíðan.

​Nánari upplýsingar um fyrirlesturinn og aðra fyrirlestra sem eru í boði á vegum Heimastyrks fást á netfanginu gudrun@heimastyrkur.is

Screen Shot 2021-09-18 at 16.57.14.png

Hjálpartæki og velferðartækni

Fræðsla, ráðgjöf og leiðbeiningar fyrir einstaklinga en einnig starfsfólk í félags- og heilbrigðisþjónustu. Tilgangur fræðslu er að upplýsa um þau tæknilegu úrræði sem eru í boði tengt heimilum, vinnu og bílum til að auka sjálfsbjargargetu við iðju og draga úr stoðkerfisvanda og álagi við aðhlynningu og aðstoð.

​Nánari upplýsingar um fyrirlesturinn og aðra fyrirlestra sem eru í boði á vegum Iðjuþjálfun Heimastyrkur fást á netfanginu gudrun@heimastyrkur.is

Screen Shot 2021-09-18 at 17.01.33.png

Líkamsbeiting
- heimilisþrif og húsverk

Fræðsla, ráðgjöf og leiðbeiningar fyrir einstaklinga en einnig fyrir starfsfólk sem vinnur við heimilisþrif og húsverk. Tilgangur fræðslu er að draga úr stoðkerfisvanda og álagi ásamt því að hvetja til heilsueflingar og vellíðan með orkusparandi vinnuaðferðum.

​Nánari upplýsingar um fyrirlesturinn og aðra fyrirlestra sem eru í boði á vegum Heimastyrks fást á netfanginu gudrun@heimastyrkur.is

Screen Shot 2021-10-26 at 21.17.55.png

Iðja, heilsa og umhverfi eftir sextugt

Fræðsla, ráðgjöf og leiðbeiningar um hvernig er hægt að stuðla að góðri heilsu og uppbyggilegri iðju eftir sextugt. Farið er yfir þau áhrif sem viðhorf, umhverfi og iðja getur haft á vellíðan, heilsufar, félagslega þátttöku og sjálfsbjargargetu. Tilgangur fræðslu er að stuðla að athafnasömu og heilsusamlegu líferni á efri árum.

​Nánari upplýsingar um fyrirlesturinn og aðra fyrirlestra sem eru í boði á vegum Heimastyrks fást á netfanginu gudrun@heimastyrkur.is

Screen Shot 2021-10-26 at 21.38.22.png

Að taka þátt og njóta alla ævi - árin eftir starfslok

Fræðsla, ráðgjöf og leiðbeiningar um mikilvægi tilgangsmikillar iðju, hreyfingar og félagslegrar þátttöku við starfslok. Tilgangur fræðslu er að stuðla að athafnasömu, lausnamiðuðu og heilsusamlegu líferni eftir starfslok með nærandi samskiptum og tengingu við samfélagið gegnum breytt hlutverk.

​Nánari upplýsingar um fyrirlesturinn og aðra fyrirlestra sem eru í boði á vegum Heimastyrks fást á netfanginu gudrun@heimastyrkur.is

Screen Shot 2021-10-26 at 21.38.54.png

Being active and enjoying life as an senior citizen

Presentation, counseling and instructions regarding the importance of meaningful occupation, excercise, social activities and participation when you retire. The purpose is to encourage active and healthy lifestyle as a senior citizen by pursuing meaningful communication and connection to the society when roles in life change around retirement. For more information and questions, gudrun@heimastyrkur.is

bottom of page