Ráðgjöf og þjónusta fyrir fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir og sveitarfélög
Ráðgjöf og þjónusta fyrir fyrirtæki, félagasamtök,
stofnanir og sveitarfélög
Iðjuþjálfar geta veitt margvíslega þjónustu og ráðgjöf fyrir fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök. Þar má t.d. nefna vinnuvernd þar sem vinnuumhverfi er metið og aðlagað að notandanum t.d. við skrifstofustarf eða erfiðisvinnu til að létta álagið á líkamann yfir vinnudaginn og þar með draga úr hættu á stoðkerfisvanda. Veitt er ráðgjöf þar sem þjónusta er metin með það í huga að efla einstaklingana sem taka þátt í að veita eða móttaka þjónustuna, stundum með aðstoð velferðartækni eða breytt vinnufyrirkomulags og oftar en ekki leiðir sú ráðgjöf til hagræðinga og bættari þjónustu. Guðrún Jóhanna iðjuþjálfi hjá Heimastyrk getur státað sig af áralangri og farsælli reynslu í ráðgjöf og þjónustu við ýmis fyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir og félagasamtök.